Gló er alltaf í leiðinni, enda staðsett í Listhúsinu í Laugardal miðsvæðis í Reykjavík. Matseðillinn saman stendur af grænmetis- og hráfæðiréttum, salati og súpum.
Yfirkokkur og uppskriftahönnuður Gló er Solla Eiríks.
Á matseðli Gló eru ávallt margbreytilegir réttir úr hráfæði, fersku grænmeti og ávöxtum, og svo einn kjötréttur. Úrvalið byggir á ferskasta hráefni sem völ er á hverju sinni og þú getur borðað á staðnum eða tekið matinn með þér heim.
Matarkort Gló er hagkvæmur kostur fyrir fastagesti og frábær gjöf til þeirra sem þér er annt um. Þú greiðir fyrir máltíðirnar fyrirfram og færð veglegan afslátt. Matarkort Gló fást hér.
+ link
+ details
Samviskulausir eftirréttir
Hefur þú prófað hráfæðiskökurnar á Gló? Eftirréttirnir okkar eru ómóstæðilegir en við notum aðeins náttúruleg sætuefni og hollustu. Hrákökurnar Gló eru matreiddar úr agave sírópi, kókos og fleiri nátturulegum hráefnum. Bragð er sögu ríkara - njóttu vel.
+ link
+ details
Fundir og mannfagnaðir
Gló stendur þér einnig til boða á kvöldin og um helgar fyrir fundi og/eða veislur. Salurinn rúmar allt að 90 manns og er bjartur og hlýlegur. Hönnuður veitingastaðarins er Gulla Jónsdóttir arkitekt.
Vinsamlega hafið samband í síma 533 1111.
+ link
+ details
Privacy Policy
This site is managed by ApOn (application online) software
Please read through this site's privacy policy