Gló uppskriftir
  • Græni Djúsinn
     
    1⁄2 agúrka 
    1 sellerístöngull 
    1⁄2 grænt epli svolítil steinselja eða annað grænt, eins og t.d. mynta 
    1⁄2 sítróna/límóna, afhýdd 
    3-3 1⁄2 dl vatn lítill biti ferskt engifer


    Skerið allt í litla bita og setjið í blandarann, ásamt vatninu, og blandið vel saman. Setjið djúspoka í könnu, hellið öllu úr blandaranum þar í, kreistið djúsinn varlega úr pokanum, hellið í glös og njótið
  • Avokado Súkkulaðimús

    2 meðalstór avókadó, afhýdd og steinhreinsuð
    kjötið innan úr 1 young coconut (má sleppa)
    5 msk kakóduft
    1 msk vanilluduft
    ¾ b agave

    Allt sett í matvinnsluvél og blandað vel.

    Passið að blanda ekki of mikið því þá byrjar avókadóið að verða rammt
    frábært að setja smá rifið appelsínuhýði útí og hafa þetta súkkulaði og appelsínufrauð.
  • Gló Brauðið sívinsæla

    2 ½ dl gróft spel
    2 ½ dl fínt spelt
    1 dl sesamfræ
    1 dl sólblómafræ
    1 dl kókosmjöl
    1 dl saxaðar hnetur
    1 msk vínsteinslyftiduft
    ½ tsk salt
    2 -3 msk hunang
    2-2 ½ dl sjóðandi vatn
    1 msk sítrónusafi
     
    Hitið ofninn í 180°C, blandið þurrefnunum saman í skál + hunang, hellið vatni og sítrónusafa útí og hrærið þessu saman, skiptið í tvennt, setjið í 2 meðalstór smurð form eða 1 í stærra lagi. Bakið við 180°C í um 30 mín , takið brauðið úr forminu og haldið áfram að baka í 10 mín

 

Skráðu þig á póstlista Sollu og fáðu:

Smelltu hér til að skrá þig
Sleppa skráningu og fara á vefsíðu