Solla, eða Sólveig Eiríksdóttir, er frumkvöðull á sviði hollustu og matargerðar. Hollur matur og matargerðarlist byrjaði sem áhugamál og hún valdi að þræða listabrautina. Að loknu Verslunarprófi frá Bifröst 1978 tók hún kennarapróf frá Håndarbejdets Fremmes í Danmörku og útskrifaðist svo sem textílhönnður frá Myndlista og handíðaskóla Íslands.
Solla hefur ávallt verið brautryðjandi og frumleg í því sem hún hefur tekið sér fyrir hendur. Hún stofnaði veitingastaðinn Grænan Kost ásamt Hjördísi Gísladóttur árið 1994 og rak hann í 10 ár. Einnig stofnaði hún lífrænu vörulínuna Himneskt ásamt Elíasi Guðmundssyni en Himneskt eru mest seldu lífrænu vörurnar á Íslandi í dag. Í byrjun árs tók hún ásamt Elíasi við veitingastaðnum Gló að Engjateig 17-19 en Gló er fyrsti veitingarstaðurinn á Íslandi sem hefur hráfæði á matseðlinum.